Þáttur 145 - Dr. Matthew Croasmun & Dr. Ryan McAnnally-Linz höfundar bókarinnar Life Worth Living
Manage episode 367143131 series 2344980
内容由Helgaspjallið and Helgi Ómars提供。所有播客内容(包括剧集、图形和播客描述)均由 Helgaspjallið and Helgi Ómars 或其播客平台合作伙伴直接上传和提供。如果您认为有人在未经您许可的情况下使用您的受版权保护的作品,您可以按照此处概述的流程进行操作https://zh.player.fm/legal。
Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1 Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Dr. Matthew Croasmun og Ryan McAnnally-Linz eru kennarar við Yale háskólann og eru tveir af þremur rithöfundum bókarinnar Life Worth Living sem hefur sitið á metsölulista New York Times frá því hún kom út í mars. Þeir skrifuðu hana útfrá áfanga í Yale sem heitir sama nafni og bókin. Hugmyndin þeirra spratt þegar kennarar við skólann höfðu áhyggjur af því að námið í skólanum undirbyggi nemendur ekki nægilega vel fyrir lífið. Þessi Life Worth Living nálgun hefur reynst vel útí heimi og einnig hjá hópum eins og föngum og fyrrverandi hermönnum. Þeir eru hér á landi að kynna bókina og munu þeir vera í verslun Pennans Eymundsson á Austurstræti þann 27 júní kl 17:30. Það var einstaklega gaman að tala við þá og grafa frekar ofan í bókina, námsskeiðið, þá sjálfa og þeirra umhverfi. Matthew er meðal annars prestur og Ryan vinnur við kristin fræði svo var gaman að spurja þá spjörunum út og í kringum það margþætta starf sem þeir starfa við. Njótið vel!
…
continue reading
197集单集